top of page

 

 

Ástin mín til þín og ástin þín til mín er sönn á hverju laugardagskvöldi þegar þú spyrð mig hvar ég sé niðurkomin og kemur um leið og ég svara til mín því þig langar svo að hitta mig. Ástin er sönn þegar þú horfir í augun á mér á dansgólfinu á DB og okkur líður eins og við séum bara tvö í heiminum. Hún er sönn þegar vinur þinn segir mér að þú sért að leita að mér. Hún er sönn þegar við sitjum í leigubílnum, hlið við hlið, á leiðinni heim til mín. Hún er sönn þegar við splittum verðinu í tvennt; eitt þúsund áttatíu og fimm krónur á mann. Hún er ósönn þegar þú segir að ég sé dekruð pabbastelpa, þegar þú segir að ég sé hundur og þú köttur, þegar þú stríðir mér en mér finnst það ekki fyndið. Hún er sönn þegar við sofum heila nótt í faðmlögum. Hún er sönn þegar þú horfir í augun á mér og brosir. Hún er ósönn þegar þú horfir í augun á mér og spyrð mig hvað ég vilji. Hún er ósönn þegar sólin rís á sunnudegi og ég skutla þér heim. Hún er ósönn þegar ég sé bílinn þinn fyrir utan hjá henni. Hún er ósönn þegar ég tek aðra stráka heim með mér af djamminu. Hún er sönn þegar það er heiðskírt. Hún er ósönn þegar það er lægð yfir landinu. Hún er sönn þegar ég labba inn á kaffihús og þú ert þar. Hún er sönn þegar ég er með sólgleraugu. Hún er ósönn þegar ég keyri niður að höfn. Hún er sönn þegar ég horfi á sjóinn. Hún er sönn þegar ég horfi á leiksýningar. Hún er sönn þegar ég borða nammi, les skáldsögur, horfi á sjónvarpsþætti, skrifa greinargerðir, drekk hafra cappuccino, fæ mér viskí með einum klaka, labba með hundinn, passa ketti, labba í strætó, fæ far í skólann, fæ far úr skólanum, fer í Bónus, kíki á Messenger, swipe-a á Tinder, hlusta á Madonnu, hlusta á James Blake, Simon & Garfunkel, þegar ég fer að sofa, þegar ég vakna, á meðan ég sef.

bottom of page